Ég byrjaði að safna saman upplýsingum með því að skoða hvernig flokkur verður til. Ég kíkti á netið og fann svo síðu sem heitir alþingi.is og fann þar beinan útdrátt frá lögum sem voru sett 19. maí 2000. Þá komst ég að þeirri niðurstöðu að það væri allt of auðvelt að búa til nýjan flokk. Eftir það fór ég og kíkti hvernig þrískipting ríkisvaldsins átti sér stað hér á Íslandi. Til þess að finna það þá þurfti ég að fara á Íslensk Stjórnmál á hinni íslensku Wikipedíu. Seinna þá fann ég texta frá bókinni Stjórnmálafræði-eftir Stefán Karlsson sem gaf mér góða hugmynd af vinstri-hægri skiptingunni í stjórnmálum. Allra seinast þá fékk ég nafnlausa ábendingu á síðu sem heitir Political Compass.org sem opnaði augum mín fyrir miklu ítarlegri stjórnmálakerfi. Á þessari síðu er útskýrt að til þess að fá sem flest sjónarhorn af pólitík þá þarf að bæta við samfélagssjónarhorni (sjá mynd fyrir neðan). Í lok þá gerði ég þessa vefsíðu fyrir bæði kynninguna og afurðina.