Hver er hinn fullkomni stjórnmálaflokkur?
Efnið sem rannsóknarspurningin er gerð úr eru íslensk nútímastjórnmál, sem voru valin í þeim tilgangi að vera bæði erfið og lærdómsrík. Í lokin komst ég að þeirri niðurstöðu að það sé ómögulegt að hafa hinn fullkomna flokk þó að það sé bara nálægt því, ástæðan fyrir þessari staðreynd er sú, að til þess að það sé fullkominn flokkur þá þarf flokkurinn að vera fyrir alla en upprunalega staðreyndin er sú að flokkur getur bara verið fyrir ákveðinn hóp manna. Þannig séð að þar er enginn fullkominn flokkur en þá kemur sú hugmynd, að gæti það verið að hópur mismunandi flokka getur haldið völdum í "fullkomni" sameiningu? Þannig að ég er búinn að vera að rannsaka þessa staðreynd og út frá því hef ég mitt svar. Svarið mitt er að hafa fimm flokka kerfi þar sem væru fimm ákveðnir flokkar í stjórn en þá væri flokkur fyrir alla, m.a. myndi vera bannað að gera nýja flokka, eyða flokk eða breyta alveg um stefnu flokks. Kosningar væru breyttar þannig að í stað þess að kjósa flokk til valda þá mundi maður kjósa flokk og frambjóðanda frá þeim flokk til þess að fá betri sæti, og líka til þess að m.a. komast áfram með skoðanirnar sem sá aðli er með.